Hægri kanturinn


Kampavíns-komminn
tekur ofan fyrir Vigdísi Hauksdóttur, leiðtoga hreyfingarinnar sem berst gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu, fyrir að birta þjóðinni með skýrum hætti þá þekkingu á Evrópumálum sem liggur til grundvallar heimssýn samtakanna og afstöðu. Sérstaka athygli vakti þekking þingmannsins og leiðtoga á stöðu eins af þeim aðildarríkjum sem Íslendingar hafa ekki síst litið til þegar kostir og gallar aðildar fyrir litla eyþjóð eru vegnir og metnir.

 

Hópefli á facebook

 

Höfundar greina

Leit
  • A Theory of Justice: Original Edition (Oxford Paperbacks 301 301)
    A Theory of Justice: Original Edition (Oxford Paperbacks 301 301)
    by John Rawls
  • Capital in the Twenty-First Century
    Capital in the Twenty-First Century
    by Thomas Piketty

Félag frjálslyndra jafnaðarmanna er félag áhugafólks um stjórnmál og stjórnkerfisumbætur. Það var upphaflega stofnað árið 1986 þegar Bandalag jafnaðarmanna gekk til liðs við Alþýðuflokkinn. Félagið á aðild að Samfylkingunni, en öllum er frjálst að vera á póstlista þess óháð flokksaðild.

Í stjórn félagsins sitja nú:

  • Dagbjört Hákonardóttir formaður
  • Freyja Steingrímsdóttir varaformaður
  • Vilhjálmur Þorsteinsson yfirféhirðir
  • Guðrún Jóna Jónsdóttir meðstjórnandi
  • Haukur Hólmsteinsson meðstjórnandi
  • Sindri Freyr Ásgeirsson meðstjórnandi
  • Stefán Rafn Sigurbjörnsson meðstjórnandi

Varamenn í stjórn eru:

  • Arnar Guðmundsson
  • Gunnar Tryggvason
  • Ásta Guðrún Helgadóttir
  • Alexandra Ýr von Erven
  • Jónas Már Torfason
  • Hlöðver Skúli Hákonarson
  • Þórunn Sveinbjarnardóttir

Stjórnin var kjörin á aðalfundi félagsins 4. nóvember 2021.

Félagið er með fésbókarsíðu sem er opin öllum sem þess óska.

Stofnskrá félagsins

Félag frjálslyndra jafnaðarmanna er stofnað til að vinna að framgangi upplýstrar jafnaðarstefnu í anda valddreifingar, lýðræðis, frelsis og jafnréttis. Hin tvíþætta áhersla frjálslyndra jafnaðarmanna á jöfnuð, velferð og lífsgæði annars vegar og verðmætasköpun byggða á öflugu atvinnulífi, athafnafrelsi og alþjóðaviðskiptum hins vegar á brýnt erindi. 

Leiðina til endurreisnar lífskjara, velferðarkerfis og samfélagslegrar þjónustu þarf að varða með atvinnustefnu þar sem áherslan er á að efla verðmætasköpun, nýsköpun og fjárfestingar með hvetjandi rekstrarumhverfi, skýrum og einföldum lagaramma, stöðugleika, öflugu menntakerfi, fríverslun og athafnafrelsi sem helst í hendur við samfélagslega ábyrgð og sjálfbæra þróun

Þetta eru þau gildi sem Félag frjálslyndra jafnaðarmanna stendur fyrir og standa um leið hjarta stórs hluta þjóðarinnar afar nærri.

Lög félagsins

(Samþykkt á aðalfundi 6. október 2011, síðast breytt á aðalfundi 31. mars 2014)

1. Nafn félagsins er Félag frjálslyndra jafnaðarmanna.

2. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. 

3. Tilgangur félagsins er að vinna að framgangi upplýstrar jafnaðarstefnu í anda valddreifingar, lýðræðis og frelsis. Þetta skal gert með útgáfustarfsemi, ráðstefnum og öðrum þeim aðferðum sem vænlegar þykja stefnunni til framdráttar. 

4. Aðalfundur félagsins skal haldinn á vormánuðum ár hvert. Aðalfundur samþykkir lagabreytingar, endurskoðaða reikninga og kýs sjö fulltrúa í aðalstjórn, sjö í varastjórn og einn skoðunarmann reikninga. Stjórnin skiptir með sér verkum og ber ábyrgð á starfi félagsins milli aðalfunda, þ.á.m. inngöngu nýrra félaga. 

5. Félag frjálslyndra jafnaðarmanna er aðili að stjórnmálahreyfingu jafnaðarmanna, Samfylkingunni.