Komdu á landsfund!
Landsfundur Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands verður haldinn að Hótel Sögu í Reykjavík föstudag og laugardag 20. og 21. mars nk.
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna á aðild að Samfylkingunni og mun senda 67 aðalfulltrúa á landsfundinn, sem fer með æðsta vald innan flokksins. Á fundinum verður stefna Samfylkingarinnar mótuð, forysta flokksins kosin og valið í framkvæmdastjórn og flokksstjórn, meðal annars.
FFJ mun boða til kynningar- og rýnifundar um drög að málefnauppleggi landsfundar, og kjósa aðal- og varafulltrúa sína, fyrir 23. febrúar.
Stjórn FFJ skorar á áhugasamt jafnaðarfólk að gefa kost á sér sem fulltrúa félagsins á landsfundi. Tilkynna má áhuga með tölvupósti á netföngin evabaldurs@gmail.com og/eða arnarg@gmail.com.
Atkvæðisrétt og kjörgengi á fundinum hafa skráðir félagar í eitthvert aðildarfélaga Samfylkingarinnar sem kjörnir hafa verið sem landsfundarfulltrúar.
Athygli er vakin á því að áhugasamir sem ekki hafa enn skráð sig sem félaga í FFJ geta gert það hér á vefnum okkar: http://www.ffj.is/skraning/.
Við innskráningu á landsfund greiða fulltrúar landsfundargjald sem stendur undir hluta kostnaðar við landsfundinn.
Hér má sjá fésbókaratburð FFJ vegna landsfundarins. Skráðu þig til leiks!